Anna María keppir um brons á EM

Anna María Alfreðsdóttir æfir bogfimi með íþróttafélaginu Akri á Akureyri. Hún hefur þegar náð frábæ…
Anna María Alfreðsdóttir æfir bogfimi með íþróttafélaginu Akri á Akureyri. Hún hefur þegar náð frábærum árangri í greininni og stefnir enn hærra. Mynd/aðsend

Anna María Alfreðsdóttir mun keppa um bronsverðlaun á Evrópumeistaramótinu í bogfimi kl 11:30-12:00 að staðar tíma í Koper í Slóveníu á laugardaginn. Greint er frá þessu á bogfimivefnum archery.is

Anna María sem æfir með íþróttafélaginu Akri á Akureyri, sigraði í dag í 8 manna úrslitum gegn Pil Munk Carlsen frá Danmörku 143-142 í mjög spennandi leik. Anna hélt því áfram í undanúrslit trissuboga kvenna U21.

Í undanúrslitum um hver myndi fara í gull eða brons leikinn keppti Anna gegn Lok Songul frá Tyrklandi í gífurlega spennandi leik þar sem þær skiptust á að halda forskotinu. Lok var með 2 stiga forskot eftir næst síðustu umferðina. Í síðustu umferðinni gaf sú Tyrkneska ekkert færi á sér og skaut fullkomið skor 30 og Anna tapaði því 145-141. Anna mun því keppa í brons úrslitum á laugardaginn.

Anna er aðeins annar Íslenski keppandinn sem mun keppa um verðlaun í U21 flokki á Evrópumeistaramóti. Guðbjörg Reynisdóttir gerði það fyrst árið 2019, en Guðbjörg mun keppa seinna í dag í 8 manna úrslitum fullorðinna á EM.


Athugasemdir

Nýjast