Ásta Kristín Sigjurjónsdóttir skrifar:
Komandi kosningar eru afar mikilvægar og við verðum að hafa kjark til þess að velja af kostgæfni. Þeir fjölmörgu sjálfstæðismenn sem ég hef rætt við á síðustu vikum og mánuðum eru allir sammála um að verkefnið sé ærið, málefnin flókin og úrlausnirnar ekki alltaf einfaldar. Tækifærin eru hins vegar mörg og það er þar af leiðandi þeim mun mikilvægara að við tökum virkan þátt í lýðræðislegu ferli, bæði prófkjörs og kosninga, nýtum okkar rétt til að velja það fólk sem við viljum fá til forystu og treystum. Kjósenda er valið, valdið og ábyrgðin, þeirra sem veljast í starfið er síðan framkvæmdin.
Tími breytinga
Á síðustu árum höfum við dregist aftur úr nágrannaþjóðum okkar í ýmsum samanburði, t.d. lífsgæðum, frelsi til athafna, jafnvægi vinnu og heimilis og svo mætti lengi telja. Sem metnaðarfull þjóð erum við ekki tilbúin að falla lengra niður, stöðnun, sífellar skattahækkanir og höft hafa hamlað nýtingu tækifæra og komið í veg fyrir að við næðum að sækja fram og auka lífsgæði. Vorið færir okkur von um betri tíma og með því að taka höndum saman um verkefnið náum við framúrskarandi árangri sem skilar sér í betra samfélagi sem við getum öll verið stolt af að tilheyra. Frelsinu fylgir mikil ábyrgð og hana verðum við að skerpa, lausnin er ekki að hefta frelsi til athafna heldur læra að fara með það eins og siðmenntuð þjóð.
Ég bið um stuðning ykkar í þriðja sæti í komandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Ég er tilbúin til að vinna að betra samfélagi og beita kröftum mínum í þeim brýnu málefnum sem fyrir okkur liggja.
Ásta Kristín Sigjurjónsdóttir, tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í NA kjördæmi