„Það bætast nýir félagar við daglega og fyrir það erum við afskaplega þakklát. Ætli við séum ekki orðin um 70 talsins og fer fjölgandi. Við þiggjum að sjálfsögðu frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja og félaga með miklum þökkum, þau eru forsenda þess að við getum hjálpað áfram,“ segir Kristín S. Bjarnadóttir hjúkrunarfræðingur með sérmenntun í líknarhjúkrun, en hún hafði forgöngu um stofnun almannaheillafélagsins Vonarbrúar svo hægt væri að fara í markvissa fjársöfnun til frekari aðstoðar á Gaza svæðinu.
Kristín hefur undanfarin misseri haldið úti óformlegu hjálparstarfi frá heimili sínu í Sigluvík á Svalbarðsströnd til fólks á Gaza. Vikublaðið heyrði í Kristínu í ágúst í fyrra um sitt hjálparstarf heima, en þá var hún í sambandi við sjö fjölskyldur.
Kristín S. Bjarnadóttir hjúkrunarfræðingur stofnaði Vonarbrú
Heldur utan um 70 fjölskyldur
„Þetta hefur heldur betur undið upp á sig og nú eru fjölskyldurnar orðnar um 70 sem ég reyni af fremsta megni að halda utan um ásamt fleirum, mikið til er þetta ungt fjölskyldufólk sem er gjörsamlega orðið úrvinda. Hin mesta martröð lífs þeirra hefur staðið yfir í tæpan 21 mánuð. Það er sama hvað við reynum að skilja þessar hörmungar, það er ekki hægt nema fyrir þau sem lifa í gegnum þær. Að vera allan sólarhringinn í lífshættu og mikilli streitu með börnin sín í sprengjuárásum og þeim gríðarlega hávaða sem fylgir er skelfileg lífsreynsla. Hvað þá í allan þennan tíma og á endurteknum flótta undan þeim hræðilegu rýmingarherferðum sem hernámsherinn beitir linnulaust. Að vera auk þess búin að missa vini, ættingja og nágranna, heimili sín, starfið, tekjurnar og bara hreinlega heimaborgina, sem hefur verið jöfnuð við jörðu, þetta er engu líkt.“
Aðgerðarleysið verður rannsóknarefni framtíðar
Kristín segir ekki hægt að ná utan um hvað Ísraelsríki geti hugsað sér að kvelja þessa ungu þjóð, en börn eru um helmingur íbúanna. „Við lifum á stórsögulegum tímum þjóðernishreinsunar þeirra, aðgerðarleysi Vesturvelda er líka stórsögulegt og dauðans alvara. Hvort tveggja verður rannsóknarefni framtíðarinnar, hvernig gat allt brugðist svona skelfilega? Tvöfalda siðgæðið og tvískinnungurinn mun blasa við og er auðvitað orsök aðgerðarleysisins. Það vantar öfluga þjóðarleiðtoga og samtakamátt til að bregðast við með refsiaðgerðum þegar alþjóðalög eru brotin með jafn alvarlegum og afdrifaríkum hætti. Ásetningur Ísarelsríkis er yfirlýstur. Þetta er glæpur gegn mannkyni.“
Þá nefnir Kristín að á liðnum vetri hafi börn og fullorðin gengið í gegnum gríðarlegar hörmungar vegna vetrarkulda og úrhellisrigninga þegar flæddi inn í tjöld og allt breyttist í drullusvað. „Það hefur verið erfitt fyrir þau að hafa í sig og á allan tímann en eftir að Ísraelsríki tók ákvörðun um að stöðva innflutning á mat og hjálpargögnum fyrr í vetur rauk matarverð upp úr öllu og hafði þó verið hátt fyrir. Ísraelsríki tókst síðan að sefa og sannfæra þjóðarleiðtoga Vesturvelda með því að segjast ætla að deila mat til þolenda sinna, í samvinnu við Bandaríkin. Mitt fólk á Gaza vissi strax að því yrði bráður bani búinn með því að leita þangað,“ segir hún og að það hafi komið á daginn.
Þetta er Reem litla þriggja ára sem var í blaðinu í fyrra, þarna búin að eignast lítinn bróður síðan þá, Adam, sem fæddist 15. desember síðastliðinn.
500 sveltandi tekin af lífi
Síðustu vikur hafi herinn tekið hátt í 500 sveltandi manneskjur af lífi við að reyna að ná í mat fyrir börn sín sem bíða hungruð í tjöldum og húsarústum. Hún segir frá 18 ára vini fjölskyldu sem hún þekkir sem ætlaði að freista þess að ná í mat fyrir systkini sín. Hann særðist fyrst við að fá sprengjubrot í sig og var síðan tekinn af lífi með skoti þráðbeint á milli augabrúnanna. „Þetta eru fjöldamorð sem eiga sér stað þarna við svokallaða matarúthlutun til sveltandi þjóðar. Um 40 manns er saknað eftir þessar vikur og um 3500 manneskjur hafa særst. Og við vitum öll hve vanbúin sjúkrahúsin eru til að taka á móti særðu fólki, herinn hefur séð til þess.“
Með uppbrettar ermar
Fólki á Gaza sé því bókstaflega allar bjargir bannaðar. Staðan hafi aldrei verið verri. Eina von fólksins sé hjálp frá einstaklingum utan úr heimi. „Ég hafði svarað því kalli fyrir rúmu ári og hef verið með uppbrettar ermar síðan. Við höfum bjargað mannslífum og munum halda því áfram. Fyrir utan sálgæslu, ráðgjöf og vináttu í gegnum samfélagsmiðla og myndsímtöl, höfum við sent peninga fyrir mat, hreinlætisvörum, lyfjum og sent styrki fyrir og eftir fæðingu barna. Einnig styrki fyrir nýjum tjöldum eða húsaleigu. Allt er á svartamarkaðsverði og fólkið er tekjulaust. Öðrum eins hetjum og öðlingum hef ég ekki kynnst um ævina. Yfirvegun þeirra og þrautseigja er engu lík en þau geta ekki meira."
Kristín S. Bjarnadóttir hjúkrunarfræðingur með sérmenntun í líknarhjúkrun, hefur ásamt fleirum stofnað almannaheillafélagið Vonarbrú. Hér er hún með dóttur sinni Sóleyju Maríu Kristínardóttir, hún er sálfræðingur