Hafin er undirskriftalisti þar sem skorað er á Akureyrarbæ að hætta að salta bæinn og byrja að sanda. Vill hópurinn sem stendur fyrir undirskriftinni meina að saltið skemmi bílana.
"Nú er Akureyrarbær byrjaður að salta götur bæjarins meira en áður en hingað til hefur alltaf verið sandað og salti haldið í algjöru lágmarki. Enda er saltið algjör skaðvaldur og fer hrikalega illa með bílana okkar og þá er ekki bara verið að tala um útlitslega séð heldur getur þetta t.d. skemmt bremsukerfi. Við viljum saltið einfaldlega burtu, sandurinn hefur gefist vel hingað til og enginn ástæða til að vera breyta því og er sú ákvörðun með öllu óskiljanleg. Við sem skrifum hér undir skorum því á bæjarstjórn Akureyrar að hætta að salta göturnar og sanda þær frekar," segir á síðunni www.change.org þar sem undirskriftasöfnunin fer fram.
Þega þetta er skrifað hafa 379 manns skrifað undir en undirskriftalistann má sjá hér.