Vilja breyta bílastæðum

Fasteignafélagið Klappir, sem á fasteignina Glerárgötu 36, hefur skrifað Akueyrarbæ bréf þar sem óskað er eftir breytingu á því hvernig bílum er lagt í aðreininni við Glerárgötu 26-38, þannig að bílum verði lagt til austurs og að gangstéttinni við húsin, en ekki til vesturs eins og gert er í dag.

Í gegnum árin hefur bílum verið lagt til vesturs og þurfa þeir sem eru á bílum að ganga yfir aðreinina til að sinna erindum í nærliggjandi húsum.

Að mati bréfritara virðist mun heppilegra að leggja bílum til austurs og öllum til hagsbóta.  Einhugur er sagður um málið meðal þeirra sem starfa við götuna og einnig hafa fatlaðir líst yfir mikilli ánægju með að formlegt erindi um þessa breytingu er komið fram.

Málið er til meðferðar hjá bæjaryfirvöldum.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast