Vegur að stíflunni í Glerárdal lokaður tímabundið

Stíflubraut fram á Glerárdal verður lokuð tímabundið
Stíflubraut fram á Glerárdal verður lokuð tímabundið

Vegna framkvæmda við stífluna í Glerárdal verður vegurinn þangað lokaður fyrir almennri umferð næstu eina til tvær vikurnar.

Lokað verður á veginum frá stíflunni og niður að skotsvæðinu vestan megin.

Stór vinnutæki verða á svæðinu og því er mikilvægt að fólk fari ekki um svæðið á meðan framkvæmdum stendur, til að tryggja öryggi allra.

Skilti verða sett upp við veginn fyrir ofan skotsvæðið, á bílastæðinu við Súlur og við stífluna austan megin við ána.

Nýjast