Frá Raufarhöfn eru 62 kílómetrar í Öxarfjarðarskóla. Ferðin tekur um 50 mínútur með skólabílnum og allar heimferðir þurfa að rúmast í einni ferð á dag. Í vetur sækja 39 grunnskólanemendur skólann úr byggðum sem ná frá Kelduhverfi í vestri til Raufarhafnar í austri. Þar móta vegalengdirnar skóladaginn, allt frá því hvenær yngstu börnin fara í frístund til þess hvenær hægt er að halda íþróttaæfingar.

Öxarfjarðarskóli er samrekinn leik- og grunnskóli. Í leikskólanum eru 16 börn og verða þau 17 eftir áramót. Grunnskólanemendurnir læra saman á þremur aldursstigum. Á yngsta stigi eru 18 nemendur í 1.–4. bekk, á miðstigi eru átta í 5.–7. bekk og á unglingastigi eru 13.
„Mikil nálægð einkennir skólastarfið og oft höfum við talað um að við séum eins og ein stór fjölskylda þar sem allir mega vera eins og þeir eru og metnir þannig að verðleikum,“ segir Hrund Ásgeirsdóttir, skólastjóri Öxarfjarðarskóla, í svörum við fyrirspurn Vikublaðsins. Hún segir að í fámennum skóla gefist svigrúm til að sinna hverjum nemanda og laga námið að þörfum hans.
Fyrir fimm árum tók skólinn upp teymiskennslu með handleiðslu Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri. Skólinn er nú í öðru þriggja ára þróunarverkefni sínu um leiðsagnarmat og leiðsagnarnám.
Allir grunnskólanemendur koma með skólabílum. Skóladagurinn hefst kl. 8.20 og lýkur kl. 15.10 hjá eldri nemendum alla daga nema föstudaga, þegar lokið er á hádegi. Kennslu yngstu barnanna lýkur um kl. 13.30 og þá fara þau í frístund þar til eldri nemendurnir eru tilbúnir að fara heim. Hrund segir að tíminn í frístund gefi þeim færi á að leika sér saman og styrkja tengslin við skólafélagana.
Nemendur á mið- og unglingastigi fara einu sinni í viku í félagsmiðstöðina Beisið í skólahúsinu á Kópaskeri. Stundum fara þau líka heim hvert með öðru. Íþróttafélagið Þingeyingur hefur fundið leið til að koma æfingum fyrir í stundaskránni. Félagið býður upp á æfingar innan skólatímans svo nemendur geti stundað íþróttir saman áður en heim er farið. Nokkrir æfa einnig á Húsavík.
Fámenninu fylgja líka áskoranir. Hrund segir erfitt að fá fagmenntað fólk til kennslu og stundum einnig í almenn störf. Auglýsingar skili yfirleitt litlu og þegar vantar fólk í afleysingar taki starfsfólkið meira að sér. Í skólanum starfi bæði kennarar og leiðbeinendur með mikla reynslu, en aukin verkefni þýði óhjákvæmilega meira álag á hópinn.

Á vorin taka bændur og fyrirtæki á svæðinu á móti nemendum í atvinnukynningar. Þar fá nemendur að spreyta sig á ýmsum störfum sem bjóðast í heimabyggð. Foreldrar hafa líka komið í skólann til að segja frá vinnunni sinni. Eitt foreldri sem starfar hjá Samherja fiskeldi kenndi nemendum að kryfja lax og fór með þeim yfir ferlið frá hrognum til slátrunar.
Samstarfið við þjóðgarðinn er árlegt. Þar fá nemendur að taka þátt í vinnustofum og fara í gönguferðir með leiðsögn. Þjóðgarðurinn gefur einnig endurvinnanlegar drykkjarumbúðir til styrktar nemendasjóðnum. Kvenfélög á svæðinu hafa í gegnum tíðina gefið skólanum búnað, bækur og spil.
Í fyrra hóf skólinn samstarf við Lókal performing arts í verkefninu Óld skúl, sem Ragnheiður Skúladóttir og Bjarni Jónsson standa að með styrk frá SSNE. Verkefnið fær listafólk á svæðið til að halda vinnustofur fyrir íbúa og nemendur. Tónlistarmaðurinn Benni Hemm Hemm hélt listasmiðju og á uppskeruhátíð í skólahúsinu á Kópaskeri stigu nokkrir nemendur á svið með tónlistartilraunir sínar. Aðrir sýndu listaverk sem þeir höfðu unnið. Í ár kom danskennari í tvo daga og vann með nemendum að tjáningu og sköpun.
Þessa dagana setur undirbúningur árshátíðarinnar svip sinn á skólastarfið. Söngvar óma úr stofunum og nemendur æfa textann í pörum eða litlum hópum. Samhliða æfingunum eru saumaðir búningar og útbúnir leikmunir og leikmyndir. Allir grunnskólanemendur taka þátt ásamt elstu börnum leikskólans.
Yngri deildin er með eigið leikverk og söngva. Nemendur á mið- og unglingastigi flytja saman verk sem unglingarnir skrifuðu sjálfir handritið að. Tónlistarskóli Húsavíkur aðstoðar við tónlist og tækni og foreldrafélagið sér um veitingar og tiltekt að sýningu lokinni.
Annað verkefni bíður nemenda í vetur. Þau ætla að búa til teiknimynd um hvernig það var að vera barn á Raufarhöfn á síldarárunum. Þóra Gylfadóttir á Raufarhöfn hefur yfirumsjón með verkefninu og vinnur það í samstarfi við skólann.
„Við erum alltaf að reyna að þróa og bæta starfið og erum bara nokkuð stolt af litla skólanum okkar,“ segir Hrund að lokum.