Útbjuggu bókamerki til styrktar barnadeild FSA

Hrafntinna Nótt og Karen Hrund ásamt Bjarna Jónassyni forstjóra FSA
Hrafntinna Nótt og Karen Hrund ásamt Bjarna Jónassyni forstjóra FSA

Vinkonurnar Hrafntinna Nótt Laufdal og Karen Hrund Kristjánsdóttur notuðu vetrarfríið sitt úr skólanum fyrr í vetur til að útbúa bókamerki sem þær gengu síðan með í hús og seldu. 

Hrafntinna Nótt og Karen Hrund eru 11 ára. Þær höfðu  ákveðið fyrirfram að gefa Sjúkrahúsinu á Akureyri andvirði söfnunarinnar, 13.174 krónur.

Vinkonurnar afhentu Bjarna Jónassyni forstjóra sjúkrahússins gjöfina, sem fer í Gjafasjóð sjúkrahússins og verður hún merkt barnadeildinni.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast