Freyr Antonsson á Dalvík sér að þessu sinni um uppskriftir vikunnar, en það var Gunnlaugur Antonsson sem sendi boltann til Freys í síðasta Vikudegi.
Einfaldleikinn og fersk krydd eru best í eldhúsinu og þannig verða mínar uppskriftir, segir Freyr.
Þorskur og kraftmikil krydd
500 1000 gr þorskur í bitum
Salt og pipar
½ ferskur rauður chili pipar
3-5 cm ferskur engifer
5-10 hvítlauksgeirar
2 matsk kókosolía
¼ rjómi
Tilbrigði
Paprika
Laukur
Sveppir
Sellerý
Setjið upp hrísgrjón eða fyrir kartöflufíkla, kartöflur. Skerið chili, engifer og hvítlauk smátt niður og setjið ásamt kókosolíunni á heita pönnu. Látið krauma í 1-2 mínútur þar til loftið ilmar. Kryddið fiskbitana með salti og pipar. Takið fiskbita og dífið ofaní olíuna og snúið strax á hina hliðina, endurtakið með alla bitana. Ef annað grænmeti á að fara á pönnuna fer það nú ofan á fiskinn. Setjið lok á pönnuna. Leyfið að steikjast á meðalhita í tvær mínútur. Passið hitann. Setjið nú rjóma útá og lokið aftur pönnunni. Fáið suðuna upp og sjóðið í 1 mínútu og slökkvið svo undir. Leyfið að vera undir loki í 7 mínútur. Berið fram með hrísgrjónum og fersku salati.
Kjúklingur og grænmeti
1 heill kjúklingur
Kartöflur
Gulrætur
Sæt kartafla
Sellerý rót
Steinseljurót
Hvítkál eða rauðkál
Sveppir
Paprika
20 hvítlauksrif
5 cm ferskt engifer
½ rauður chili pipar
Ferskt eða þurrkað timjan
Salt og pipar
Kjúklingakrydd
½ sítróna
2 matsk virgin olífu olía.
Skerið kartöflur í tvennt og setjið í skál og kalt vatn yfir. Skerið allt niður í stóra bita nema engifer og chili smátt og hvítlauk heila geira. Setjið allt í leti pott eða ofnpott, hellið af kartöflunum og setjið saman við. Kryddið með salti og pipar, kreistið sítrónu yfir og setjið olífu olíu úti. Setjið lok á pottinn og hristið saman. Setjið kjúklinginn kryddaðan með kjúklingakryddi eða salti og pipar ofaní þannig að vel fari. Setjið inní 180°C heitan ofn í 2 tíma. Síðustu 15 mínúturnar er gott að taka lokið af. Takið kjúklinginn uppá fat og berið fram með fersku salati, dásamlegu grænmetinu og soðinu í ofn pottinum.
Athugið að magn grænmetis breytir litlu.
Fer vel á því að skora á Kristmann Pálmason með næstu uppskrift.
Verði ykkur að góðu.