Strætóferðir um Norður og Norðausturland

Nýjungar urðu í almenningssamgöngum á Norður- og Norðausturlandi um áramótin, þegar Strætó hóf  akstur á  svæðinu. Þessi nýjung mun leiða til fleiri ferða og aukinnar þjónustu á svæðinu. Þrjár leiðir verða í boði: Siglufjörður – Akureyri, Egilsstaðir- Akureyri og Þórshöfn - Akureyri í gegnum Húsavík.

Panta þarf sérstaklega ferðir til Ásbyrgis, Kópaskers, Raufarhafnar og Þórshafnar með minnst fjögurra tíma fyrirvara.

Á vef Strætó, www.straeto.is er hægt er að kynna sér tímaáætlanir og hve mörg gjaldsvæði liggja á milli þeirra. Þar er einnig að finna reiknivél til að reikna út verð á milli staða 

Fargjaldið miðast við fjölda gjaldsvæða sem farið er yfir í hverri ferð. Staðgreiðsluverð er 350 fyrir hvert gjaldsvæði. Ef greitt er með farmiðum  þarf að nota jafn marga miða og fjöldi gjaldsvæða segir til um.  Sem dæmi má nefna að 6 gjaldsvæði eru á milli Akureyrar og Húsavíkur, ef greitt er með farmiðum þarf að nota 6 farmiða og þá kostar ferðin 2.000 kr. fyrir fullorðna (750 kr. fyrir ungmenni, 330 kr. fyrir börn og 690 kr. fyrir öryrkja og aldraða)

Í upphafi  verður akstri um Norður og Norðausturland sinnt með langferðabílum frá Hópferðabílum Akureyrar og verður þráðlaust net  um borð í öllum vögnum.

Nýjast