Slydda í kortunum fyrir norðan

Fyrr í mánuðinum gránaði í fjöllum fyrir norðan/mynd Karl Eskil
Fyrr í mánuðinum gránaði í fjöllum fyrir norðan/mynd Karl Eskil

Veðurstofan gerir ráð fyrir hægri svuðvestlægri átt á Norðurlandi eystra í dag. Hitinn verður á bilinu 10 – 15 stig og skúrir í kvöld. Upp úr hádegi á morgun á að létta til.

Þegar líður á vikuna kólnar svo í veðri fyrir norðan. Á föstudag er útlit fyrir hvassa norðaustan- og norðanátt með rigningu en slyddu til fjalla á fyrir norðan.  Á laugardag verður hvöss norðvestanátt og úrkoma á Norðurlandi. Á sunnudag er svo gerrt ráð fyrir hlýnandi veðri.

Nýjast