Sumarið lítur mjög vel út hjá okkur, farþegum fjölgar miðað við síðasta sumar og skipin sem hafa bókað komu sína eru auk þess mun stærri, segir Pétur Ólafsson skrifstofustjóri Hafnasamlags Norðurlands.
65 skipakomur hafa þegar verið skráðar hjá samlaginu næsta sumar, fyrsta skipið leggst að bryggju á Akureyri 4. júní og síðasta skipið er væntanlegt 11. september.
Síðasta sumar voru farþegar skemmtiferðaskipanna samtals 66 þúsund, en næsta sumar verða farþegarnir líklega um 78 þúsund talsins, þannig að verið erum að tala um nærri fimmtungs aukningu.
Sömu sögu er að segja um stærð skipanna, þegar tonnafjöldinn er reiknaður út er aukningin sömuleiðis um fimmtungur.
100 milljónir
Tekjur Hafnasamlags Norðurlands á nýliðnu ári voru rétt um 300 milljónir króna. Tekjurnar vegna skemmtiferðaskipa voru um 100 milljónir króna og hefur hlutfallið hækkað ár frá ári.
Já, já, skemmtiferðaskipin skipta okkur miklu máli og sem betur fer hefur okkur gengið vel að markaðssetja höfnina. Það eru margir þættir sem skipta máli í þessu samhengi, við erum meðal annars að njóta þess að Ísland er
í tísku þessi árin hjá ferðafólki. Markaðssetningin er líka mikilvæg, við höfum lagt ríka áherslu á að kynna aðstöðuna hérna og sú vinna er að skila sér.
karleskil@vikudagur.is