Eigendur Hamborgarafabrikkunnar íhuga að opna útibú á Akureyri og er þessa dagana leitað að hentugu húsnæði. Gamla Súlnaberg á Hótel Kea er einn af þeim stöðum sem koma til greina, eftir því sem Vikudagur kemst næst.
Páll L. Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Hótel Kea, vildi ekki staðfesta þetta en sagði unnið í ýmsum málum varðandi útleigu á veitingaaðstöðu. Engir samningar væru frágengnir.
Hamborgarafabrikkan er í eigu þeirra Sigmars Vilhjálmssonar og Jóhannesar Ásbjörnssonar, betur þekkta sem Simma og Jóa. Félagarnir hófu rekstur í Höfðatorgi í Reykjavík í mars árið 2010 og síðan þá hefur Fabrikkan verið einn vinsælasti hamborgarastaður landsins.
Eigendur margra vinsælla veitingastaða á höfuðborgarsvæðinu hafa á undanförnum árum lýst yfir áhuga á að hefja rekstur á Akureyri, m.a. hafa eigendur KFC lengi haft augastað á Akureyri.
throstur@vikudagur.is