SAk tryggt fé til kaupa á heilaörvunartæki

Sjúkrahúsið á Akureyri hefur fengið fé til kaupa á heilaörvunartæki     Mynd  gn
Sjúkrahúsið á Akureyri hefur fengið fé til kaupa á heilaörvunartæki Mynd gn

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur tryggt fjármagn sem gerir Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) kleift að innleiða heilaörvunarmeðferð einstaklinga með meðferðarþrátt þunglyndi. Áætlað er að á upptökusvæði SAk séu um 240 einstaklingar sem gætu nýtt sér slíka meðferð árlega. Rannsóknir sýna að meðferðin skilar miklum árangri, eða um 60-70% í hópi einstaklinga sem þjást af meðferðarþráu þunglyndi en hafa lítið gagn af hefðbundinni meðferð, s.s. lyfjum og hugrænni atferlismeðferð.

Talið er að á bilinu fimm til tíu prósent landsmanna glími við þunglyndi. Um tveir þriðju ná bata með hjálp lyfja og samtalsmeðferða. Um þriðjungur nær ekki bata og þróar með sér það sem kallað er meðferðarþrátt þunglyndi, eða um 5.000 einstaklingar á hverjum tíma.

Hingað til hefur heilaörvunarmeðferð (TMS) einungis verið veitt á Heilaörvunarmiðstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en byrjað var að veita slíka meðferð þar árið 2022. Þar er tekið við einstaklingum af landinu öllu en meðferðin krefst þess að viðkomandi mæti í meðferð alla daga vikunnar í fjórar til sex vikur. Til að komast í meðferð þarf tilvísun frá heimilislækni eða geðlækni.

Bætir aðgengi að sérhæfðri geðheilbrigðisþjónustu á landsvísu

Heilbrigðisráðherra segir innleiðingu heilaörvunarmeðferðar við SAk mikilvægan lið í því að bæta aðgengi að sérhæfðri geðheilbrigðisþjónustu á landsvísu. Þetta styðji við markmið þingsályktunar um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum og sömuleiðis markmið heilbrigðisstefnu um að jafna aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu: „Síðast en ekki síst er árangursrík og tímanleg meðferð við þunglyndi mikilvægt lýðheilsumál, stuðlar að bættum lífsgæðum fólks og er mikilvæg forvörn gegn sjálfsvígum“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

„Við fögnum þessari viðbót við þjónustu SAk, þar sem skjólstæðingar geta nú fengið þessa meðferð nærri heimabyggð. Þetta eykur aðgengi og gerir fleirum kleift að nýta sér þjónustuna. Um leið felur þetta í sér bæði faglegan og fjárhagslegan ávinning fyrir allt heilbrigðiskerfið“ segir Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri SAk.

Nýjast