Rúmum 70 milljónum úthlutað til menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum
Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra úthlutaði í dag 18. maí 70,1 milljón króna til menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar á starfssvæði Eyþings. Sjóðurinn er hluti af samningi milli Eyþings og ríkisins um Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2015-2019.
Sjóðurinn er samkeppnissjóður og veitir verkefnastyrki til menningarverkefna, atvinnuþróunar og nýsköpunar auk stofn- og rekstrarstyrkja til menningarmála.
Uppbyggingarsjóði bárust samtals 190 umsóknir, þar af 58 til atvinnuþróunar og nýsköpunar og 132 til menningar. Sótt var um 111,8 milljónir, þar af 56,3 til atvinnuþróunar og nýsköpunar og 55,4 til menningarstarfs.
Uppbyggingarsjóður samþykkti að veita 93 verkefnum styrkvilyrði að upphæð 70,1 mkr. Áætlaður heildarkostnaður við verkefnin er rúmar 300 mkr, þetta kemur fram í tilkynningu á vef Eyþings. /epe.