Rafbókin er ekki að velta prentútgáfunni úr sessi

Hólmkell Hreinsson
Hólmkell Hreinsson

Mikil gróska er í bókaútgáfu hér á landi og aldrei hafa fleiri titlar komið út en á árinu 2012. Bókatitlarnir í fyrra voru 842, en 757 árið 2011. Hólmkell Hreinsson er forstöðumaður Amtsbókasafnsins á Akureyri „Bókatitlum fjölgar, en að auki er útgáfan að breytast mikið, formið er fjölbreyttara en áður,“ segir Hólmkell og nefnir þar m.a. rafbækur til sögunnar, sem og hljóðbækur en hvað þær varðar megi segja að um byltingu sér að ræða.

Sífellt fjölgar einnig titlum sem út koma í rafrænu formi.

„Það er enn langur vegur frá því að rafbókin sé að ógna prentuðum bókum að einhverju ráði. Fólk er vissulega spennt fyrir rafbókum enda hefur hún sína kosti og eflaust munu vinsældir hennar aukast á næstu árum. Enn erum við þó ekki komin á þann stað ennþá að rafbókin sé að velta prentútgáfunni úr sessi,“ segir Hólmkell.

throstur@vikudagur.is

Nýjast