„Verslun okkar á Akureyri er með vinsælli verslunum okkar,“ segir Ingimar Jónsson forstjóri Pennans. Nú eru 25 ár liðin frá því Penninn Eymundsson opnaði verslun sína á Akureyri og af því tilefni verða allar vörur á 25% afslætti fimmtudag, föstudag og laugardag.
Ingimar segir staðsetningu verslunar Pennans á Akureyri einstaka, á sögufrægu horni í hjarta bæjarins. „Þetta er einn af bestu stöðum bæjarins og þar er löng hefð fyrir rekstri verslana. Það er mikil umferð fólks um þetta horn og mjög margir sem líta við og skoða úrvalið,“ segir hann.
Öflug húsgagnadeild
Úrvalið er mjög fjölbreytt og spannar svo til allt sem Penninn býður upp á í sínum verslunum, bækur, skrifstofuvörur, ritföng, gjafavörur og minjagripi svo dæmi séu nefnd. Á annarri hæð er rekin húsgagnadeild og segir Ingimar að þar séu húsgöngn af öllu tagi í boði. „Við þjónustum allt Norðurland og einnig Austurland. Við höfum átt mikil viðskipti í þessum landshlutum og erum afskaplega ánægð með að bjóða okkar vörur á svæðinu,“ segir hann en m.a. hefur skólasamfélagið keypt mikið af húsgögnum frá Pennanum í gegnum árin.
Kaffi Lyst fær góðar viðtökur
Kaffihús hefur verið rekið í Pennanum um árabil. Nýverið tók Kaffi Lyst sem einnig rekur veitingahúsið LYST í Lystigarðinum við rekstri kaffihússins og hafa viðtökur verið góðar. „Þetta fer mjög vel af stað, enda allt vandað og fyrsta flokks sem Reynir í Kaffi Lyst kemur nálægt,“ segir Ingimar.
Verslunarstjóri Pennans á Akureyri er Guðný Ketilsdóttir. Starfsfólk er á bilinu 20 til 30 talsins eftir árstíma. Afgreiðslutími er langur, opið er alla daga vikunnar frá kl. 9 að morgni til 21 að kvöldið.