Mótorhjólasafnið á Akureyri fékk góða gjöf á dögunum, fallegan granítbekk til minningar um bræðurna Stefán Hafstein “ Tangó” sem lést í bifjólaslysi árið 2020 og Bjarmar Smára sem lést ungur að árum árið 1989. Það var móðir bræðranna Bjarnheiður sem færði sfninu bekkinn.
Á myndinni má sjá hversu vel bekkurinn fer við safnið. Tómas Ingi Jónsson frá Mótorhjólasafninu tók við gjöfinni. Safnið er opið um helgar í vetur, frá kl. 13 til 16 bæði laugardaga og sunnudaga.
