Magnaði Mendelssohn

Magnaði Mendelssohn í Hofi á morgun laugardag.
Magnaði Mendelssohn í Hofi á morgun laugardag.

Felix Mendelssohn (Bartholdy) er talinn hafa verð einn mesti tónsnillingur allra tíma. Undrabarn sem á sinni stuttu 38 ára æfi samdi eina fallegustu tónlist veraldar. Jafnvel önnur tónskáld kölluð hann "hinn nýja Bach" m.a. Liszt, Schumann og Berlioz.

Hljómsveit Akureyrar flytur best þekktu tónverkin hans laugardaginn 7. júní í Hamraborg í Hofi kl. 20.00 og ber þar helst að nefna Fiðlukonsert í e moll sem er talinn yndislegasti konsert allra tíma.

Einleikari á fiðlu er hin kornunga Helga Diljá Jörundsdóttir sem var meðal sigurvegara Ungra einleikara 2024 og Nótunnar 2023. Hún var valin til þátttöku í Voksenåsen Strings Talent Program 2024/2025. Hún hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Tónleikarnir hefjast á Hebrides forleiknum sem er annars þekkt undir nafninu Hellir Fingals.

Brúðkaupsgjöf!

Kafli úr óratóríunni Elías verður fluttur af Reyni Gunnarssyni sem einsöngvara. Ítalska sinfónían með sínum sjóðheitu ítölsku áhrifum og svo tónlist við leikrit Shakespeares sem heyrist oftast sem brúðarmars og viljum við bjóða öllum sem hafa gifst á árinu að þiggja aðgöngumiða sem brúðkaupsgjöf.

Nýjast