Lokaorðið - Èg skil ekki…

Dýrleif Skjóldal átti Lokaorðið í blaðinu s.l. fimmtudaag
Dýrleif Skjóldal átti Lokaorðið í blaðinu s.l. fimmtudaag

Ég er svo heppin að eiga nokkrar systur. Tvær þeirra gáfu foreldrar mínir mér en hinar færði lífið mér. Það er nefnilega þannig að stundum hittir maður fólk, í þessu tilfelli konur, sem gætu alveg verið í fjölskyldunni því það er eitthvað kunnuglegt við þær. Þess vegna lít ég á þær sem systur mínar. Þær hafa kennt mér margt og auðgað líf mitt á ýmsa vegu.

Ein þeirra hefur kennt mér hin ýmsu gáfulegu og/eða skemmtileg orðatiltæki sem hún hefur í orðfæri sínu. Þetta tiltekna orðatiltæki sem kom upp í huga minn nú og gerir ansi oft, hefur æði oft hjálpað mér í gegnum hugarangur.

,,Dilla mín, það getur ekki verið að manni sé ætlað að skilja allt!” segir Magga systir. Og af því að mér er ekki ætlað að skilja allt, þá stendur eftir að sumt skil ég ekki t.d:

  1. Af hverju þarf maður að keyra á 70 km. hraða í gegnum upplýst ný jarðgöng, þar sem eru engar skepnur, hjólreiðafólk eða gangandi fólk sem geta truflað ökumanninn, þegar það er leyft að keyra á 90 báðum megin við göngin?
  2. Af hverju þarf 8 hraðahindranir á Bugðusiðuna og kröfu um 30 km. Aksturshraða þegar þú sérð marga metra og gangstéttin liggur ekki upp við götuna?
  3. Af hverju er alltaf verið að spara í matarinnkaupum í leikskólum þrátt fyrir að allir viti að matarverðið hækki stöðugt og allir vita að börn eiga að fá hollann og góðan mat samkvæmt manneldismarkmiðum?
  4. Af hverju er ekki löngu byrjað á yfirbyggðri æfinga-og keppnissundlaug sem nýtist öllum á Akureyri?
  5. Af hverju er ég ekki duglegri í húsverkunum?
  6. Af hverju koma jólin alltaf of snemma?
  7. Af hverju, af hverju, af hverju……..???

Svo ef þið eruð oft í sömu sporum og ég að skilja ekki af hverju sumt er svona og annað öðruvísi þá get ég huggað ykkur með því að ykkur er sennilega ekki heldur ætlað að skilja allt!

Nýjast