Skipulagsráð Akureyrar hefur tekið jákvætt í erindi frá Skúla Lórenz Tryggvasyni sem óskaði eftir svæði til að setja upp litaboltavöll (e. paintball).
Nefndi hann í umsókn sinni tvö svæði, gamla tjaldsvæðið við Þórunnarstræti og flötina neðan við Hafnarstræti 57.
Skipulagsráð er jákvætt fyrir því að svæði á gamla tjaldsvæðinu verði nýtt fyrir tímabundna uppsetningu á litaboltavelli .
Um yrði að ræða völl sem yrði 25x25 metrar með girðingu í kring.