Fyrir marga er þetta lífsstíll, fólk vill gjarnan vera sjálfbært, njóta útiveru, dunda við ræktun sína og njóta afrakstursins að hausti og fram eftir vetri, segir Jóhann Thorarensen verkstjóri í Ræktunarstöð Akureyrarbæjar við Krókeyri. Bærinn leigir út matjurtargarða og er mikil ásókn í garðana. Nú með haustinu er fyrirhugað að bjóða upp á námskeið þar sem m.a. verður farið yfir geymsluaðferðir og nýtingu á grænmeti. Slík námskeið hafa áður verið haldin í samvinnu við Verkmenntaskólann á Akureyri, matvælasvið og afnot fengist af eldhúsi skólans.
Grenndargarðar í bænum
Í ljósi vaxandi áhuga hefur Jóhann hug á að kynna hugmynd sína um grenndargarða fyrir bæjaryfirvöldum, þ.e. að setja upp litla garða hér og hvar í hverfum bæjarins. Á hverjum stað gætu verið 10 til 15 garðar og segir hann að í öllum hverfum bæjarins megi finna bletti til að koma görðum af þeirri stærð upp. Nefnir hann m.a. svæði yst við Mýrarveg og eins Eiðsvöll sem dæmi.