Kristinn G. sýnir í Mjólkurbúðinni

Sumar
Sumar

Kristinn G. Jóhannsson opnar myndlistasýningu í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri á morgun. Hann hélt sýna fyrstu sýningu á Akureyri árið 1954. Um sýninguna sem opnar á morgun segir Kristinn:

 “Hvað sem annars má segja um þessi verk verður því með engu móti haldið fram, með réttu, að þeim hafi verið hróflað upp í skyndi eða í óðagoti.  Eins og sum ykkar muna ef til vill var fyrst skorið til þeirra fyrir rúmum þrjátíu árum og stundum hefi ég sýnt ykkur hluta úr þeim eða frumparta . Fyrst vorið 1982. Þau verk hafa síðan lifað sjálfstæðu lífi.  En nú loksins hefur mér auðnast það eftirlæti að koma verkunum til annarrar meðvitundar.  Þau eru orðin eins og mig minnir ég hafi ætlað þeim í upphafi  án þess ég muni það  glöggt, enda er fátítt að nokkuð verði það sem því var ætlað.

Þar sem þetta verkefni hefur tekið mig þrjátíu ár  og ég að nálgast áttrætt er ekki talið líklegt ég ljúki öðru slíku verki. Er þó langlífi í ættum sem að mér standa, bæði svarfdælskum og þingeyskum. Þess vegna má, held ég , lofa ykkur því, að með þessu ljúki útskornu , grafísku og þrykktu lífi mínu en það hefur verið með nokkrum fádæmum og  fólgið í þessum  dúkristum, sem hér hefur verið raðað saman til að byggja  þessi kostulegu verk, sem  eiga sér ekki marga sálufélaga. Hvað  sem því  líður er ég heldur feginn því, að  nú er lokið bjástrinu og ég hefi komið þessum dúkskurði á nýtt tilverustig.”

Nýjast