Jólin koma á Ráðhústorg á Akureyri í dag

Það verður sannkölluð jólastemning á Ráðhústorgi á Akureyri í dag þegar ljósin verða tendruð á jólatrénu og Jólatorgið opnar. Fjölbreytt dagskrá verður í boði fyrir gesti og gangandi, þar sem jólasveinar, söngur og ævintýrapersónur úr leikhúsheiminum koma við sögu.

Dagskráin hefst klukkan 16 en Jólatorgið verður opnað klukkan 15. Þar verður ýmis forvitnilegur varningur á boðstólum í skreyttum jólahúsum.

Meðal þeirra sem koma fram á dagskránni eru jólasveinar og Barnakórar Akureyrarkirkju. Þá bregða ævintýrapersónur úr veröld leikhússins á leik og skapa hátíðlega stemningu á torginu.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri og Erik Vilstrup Lorenzen, sendiherra Danmerkur á Íslandi, flytja stutt ávörp. Það verður síðan Salka Einarsdóttir, fjögurra ára, sem fær þann heiður að kveikja ljósin á jólatrénu.

Jólatorgið verður opið allar helgar fram að jólum. Opnunartími er frá klukkan 14 til 18 á laugardögum og frá klukkan 14 til 17 á sunnudögum.

 

Nánar á jólatorg.is.

 

 

Nýjast