Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2012

Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2012 er Jakob Helgi Bjarnason skíðamaður í Skíðafélagi Dalvíkur.
Jakob Helgi Bjarnason hefur lagt mikið á sig til að ná langt í skíðaíþróttinni og er hann í fremstu röð í heiminum í sínum aldursflokki. Árið 2012 varð Jakob Helgi tvöfaldur Íslandsmeistari í karlaflokki þá 16 ára, hann var einnig bikarmeistari SKÍ í 15 – 16 ára flokki og unglingameistari í svigi, alpatvíkeppni og samhliðasvigi.

 

Nýjast