Íslenskt skólastarf liggur undir skemmdum

Hjalti Jón Sveinsson skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri segir að þrátt fyrir áralangan samdrátt í fjárframlögum til skólans og sparnaðaraðgerðir af ýmsu tagi, hafi tekist að halda úti óbreyttu námsframboði við skólann. Fyrir áramót voru um 1300 nemendur í dagskóla og um 500 nemendur í fjarnámi. Í úrskriftarræðu sinni, er um áttatíu nemendur voru brautskráðir, fjallaði Hjalti Jón um fjárveitingar til skólans.

 „Háværar raddir hafa verið um það í þjóðfélaginu að undanförnu að heilbrigðistséttir séu að kikna undan sífellt auknu álagi sem sé afleiðing hagræðingarkrafna ríkisvaldsins eftir efnahagshrunið. Hið sama á við um starfsfólk framhaldsskóla sem hefur þurft að sinna starfi sínu í skugga niðurskurðar á fjárheimildum síðan þremur árum fyrir hrun en þá var um svokallaða hagræðingarkröfu að ræða. Nú er svo komið að lengra verður ekki gengið. Fjárveitingar munu nánast standa í stað, en miðað við þá verðbólgu sem geisar í íslensku efnahagslífi verðum við enn að rifa seglin.

 Engu að síður hafa allir kappkostað að þessar erfiðu aðstæður komi sem minnst niður á gæðum kennslu og annars skólastarfs. Ég vil þakka bæði nemendum skólans og starfsfólki fyrir umburðurlyndið og seigluna. - En óhætt er að segja um íslenskt skólastarf í dag – að það liggi undir skemmdum,“ sagði Hajalti Jón Sveinsson

Nýjast