Höfum alla anga úti við að koma húsinu í notkun

„Þetta er á frumstigi og alveg óvíst hvað af verður,“ segir Vilhelm Patrick Bernhöft eigandi jarðhæðar hússins númer 28 við Glerárgötu. Hann hefur sótt um leyfi til skipulagssviðs Akureyrarbæjar fyrir mathöll í húsinu. Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu að því er fram kemur í bókun skipulagsráðs vegna fyrirspurnarinnar.

Skipulagsráð hefur samþykkt að grenndarkynna áformin þegar fullnægjandi göng hafa borist og en kynna þarf erindið fyrir húseigendum og rekstraraðilum við Glerárgötu 26, 28 og 30.

Vilhelm á jarðhæð hússins við Glerárgötu 28. Ásprent var þar með rekstur um árabil, en félagið varð gjaldþrota á fyrri hluta síðasta árs. Prentmet Oddi leigir nú um það bil einn þriðja af jarðhæðinni undir sína starfsemi.

 „Það eru enn eftir um 1000 fermetrar ónotaðir og við höfum eðlilega áhuga fyrir að leiga þá út,“ segir Vilhelm, en fyrirspurn hefur borist frá aðila sem hefur hug á að setja upp mathöll í bænum og kannaði með húsnæði hans undir þá starfsemi. „Við erum með alla anga út að koma húsinu í notkun, en á þessu stigi vitum við ekki hvað verður. Fyrst er að bíða eftir svari frá Akureyrarbæ hvort til þess fáist leyfi.“

/MÞÞ


Athugasemdir

Nýjast