Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra telur árangur hafa náðst við tiltekt og úrbætur á athafnasvæði Auto ehf. í Setbergi á Svalbarðsströnd, en bendir á að enn sé töluvert verk óunnið áður en markmiðum verði náð.
Ásýnd svæðisins frá þjóðvegi hafi batnað á undanförnum misserum, en nauðsynlegt sé að halda markvisst áfram með framkvæmdir ef fyrirhuguð verklok fyrir árslok 2026 eigi að standast.
Nefndin hafnaði að svo stöddu að fella niður áfallnar og óinnheimtar dagsektir þar sem úrbótum er ekki lokið. Jafnframt var starfsmönnum falin áframhaldandi eftirfylgni með málinu.
Þá hefur Auto ehf. verið gert að skila mánaðarlegum framvinduskýrslum um stöðu tiltektar og úrbóta á svæðinu. Fyrsta skýrslan átti að líta dagsins ljós nú í vikunni.-