Hverfissráð Grímseyjar leggur til að útbúin verði íþróttaaðstaða við sundlaugina, enda þurfi hvort eð er að ráðast í talsverðar endurbætur og framkvæmdir á svæðinu.
Bendir ráðið á að ótækt sé að íbúar eyjarinnar hafi ekki aðgang að íþróttaaðstöðu. Verst sé að kenna þurfi skólabörnum íþróttir í samkomusal og þar megi ekki nota bolta. Engar sturtur eru til staðar í samkomusalnum. Leggur hverfisráð því til að byggt verði við sundlaugina, en með því nýtist forstofa, búningsklefar og sturtur sem þar eru til staðar.
Raunar bendir ráðið á að betrumbætur þurfi að gera á sturtunum í sundlauginni, þær séu ekki nema þrjár talsins í hvorum klefa og hafi í það minnsta ein þeirra sem í kvennaklefanum er verið í ólagi ekki skemur en tvö undanfarin ár.