Það var að venju mikið um dýrðir á Akureyri í dag þegar krakkar á öllum aldri gengu á milli fyrirtækja og stofnana til að syngja fyrir nammi á öskudaginn. Veðrið var mjög gott og því fleiri á ferðinni en oft áður.
Undanfarna mánuði hef ég kynnst heilbrigðiskerfinu okkar töluvert betur en ég hefði kosið að gera í lífinu. Fyrir tæpu ári greindist ég með erfitt krabbamein, fór í gegnum lyfja- og geislameðferðir í Reykjavík og svo var meinið skorið í burtu í tólf tíma skurðaðgerð á Karolinska í Svíþjóð. Um var að ræða sérhæfða aðgerð þar sem meltingarveginum var breytt til frambúðar. Fólk lendir í ýmsu og þetta féll mér í skaut að takast á við. Margir sjá það verra.
Viðgerðir og viðhald á ferjunni Sæfara eru tímafrekari en búist var við. Samkvæmt nýjustu upplýsingum er áætlað að ferjan hefji siglingar á ný í síðasta lagi 9. mars.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Drottningarbrautarreits hefur verið auglýst. Breytingin felur í sér að Hafnarstræti sunnan Kaupvangsstrætis verði breytt í vistgötu þar sem gangandi og hjólandi vegfarendur njóta forgangs.
Starfsfólk Skrifstofu stéttarfélaganna kemur til með að taka vel á móti gestum sem líta við hjá þeim í dag á sjálfan Öskudaginn. Án efa er mikil gleði framundan með fallegum söng og leikatriðum. Verið velkomin.
Eins og mörgum er án efa kunnugt, á Akureyrarbær matjurtagarða sem íbúar bæjarins geta leigt yfir sumartímann til að rækta eigið grænmeti. Framtakið hefur gert mikla lukku meðal bæjarbúa sem rækta sitt eigið grænmeti með bros á vör í notalegu umhverfi þar sem alltaf er skjól.
Á Nýsveinahátíð IMFR - Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík á Hótel Natura í Reykjavík á dögunum tóku 33 nýsveinar í 21. löggiltri iðngrein við viðurkenningum fyrir afburðaárangur á sveinsprófi á síðasta ári, þar af fimm nýsveinar sem stunduðu nám við VMA.