Gistinætur á norðlenskum hótelum voru samtals 7.300 í nóvember, samanborið við 3.300 í sama mámuði 2011.
Ástæðuna fyrir þessari miklu aukningu má fyrst og fremst rekja til erlendra ferðamanna sem komu norður til að horfa á norðurljósin. Slíkar ferðir hafa notið mikilla vinsælda, en Icelandair kynnti slíkar ferðir sérstaklega í Bandaríkjunum á síðasta ári. Flestir gista á Icelandair hótel á Akureyri, en fleiri hótel fyrir norðan hafa notið góðs af markaðssetningunni.
karleskil@vikudagur.is