Verkefnið mun klárlega hafa jákvæð áhrif á hagkerfi svæðisins, segir Arnar Ingi Jónsson, sérfræðingur í Hagfræðideild Landsbankans um gerð Vaðlaheiðarganga. Göngin kosta um 11 milljarða króna, skrifað verður undir samninga um gerð ganganna í næstu viku. Það skapast mörg ný störf á frakvæmdatímanum og umsvifin á mörgum sviðum aukast. Greiðar samgöngur skipta miklu máli, göngin koma til dæmis til með að stækka atvinnusvæðið umtalsvert, segir Arnar.
Hagspá bankans gerir ráð fyrir 2,4% hagvexti á þessu ári og að hann muni aukast áfram út spátímabilið og enda í 3,2% árið 2015. Horfur í efnahagsmálum voru ræddar á fundi í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í morgun.
karleskil@vikudagur.is