Gerð Vaðlaheiðarganga hefur jávkæð áhrif á hagkerfi svæðisins

„Verkefnið mun klárlega hafa jákvæð áhrif á hagkerfi svæðisins,“ segir Arnar Ingi Jónsson, sérfræðingur í Hagfræðideild Landsbankans um gerð Vaðlaheiðarganga. Göngin kosta um 11 milljarða króna, skrifað verður undir samninga um gerð ganganna í næstu viku. „ Það skapast mörg ný störf á frakvæmdatímanum og umsvifin á mörgum sviðum aukast. Greiðar samgöngur skipta miklu máli, göngin koma til dæmis til með að stækka atvinnusvæðið umtalsvert,“ segir Arnar.

Hagspá bankans gerir ráð fyrir 2,4% hagvexti á þessu ári og að hann muni aukast áfram út spátímabilið og enda í 3,2% árið 2015. Horfur í efnahagsmálum voru ræddar á fundi í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í morgun.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast