Gæði kjötsins þau sömu

Fé á Þeistareykjum. Mynd/Norðlenska.
Fé á Þeistareykjum. Mynd/Norðlenska.

Sýrustigsmælingar gefa til kynna að fé sem lent hefur í hrakningum vegna óveðursins á Norðurlandi í byrjun síðustu viku sé ekki stressað eins og haldið hefur verið fram. Gæði kjötsins eru því jafn mikil og venjulega. Þetta segir Sigurgeir Höskuldsson gæðastjóri Norðlenska á vefsíðu fyrirtækisins, en starfsmenn þess hafa gert ítarlegar sýrustigsmælingar á fé síðustu daga til að fá úr þessu skorið.

„Niðurstaðan er sú að það eru engin frávik frá eðlilegu ástandi. Við munum að sjálfsögðu fylgjast með þessu áfram til að vera fullvissir um að við uppfyllum alla gæðastaðla. En það bendir allt til þess að gæði kjötsins séu eins mikil og þau geta verið,“ segir Sigurgeir.

throstur@vikudagur.is

Nýjast