Fyrsta skóflustungan tekin að nýjum gervigrasvelli KA

Siguróli Sigurðsson og Þormóður Einarsson að lokinni fyrstu skóflustungunni á KA-svæðinu í dag/Mynd:…
Siguróli Sigurðsson og Þormóður Einarsson að lokinni fyrstu skóflustungunni á KA-svæðinu í dag/Mynd: KA

Í dag er haldið upp á 85 ára afmæli KA, sömuleiðis er þetta dagurinn sem framkvæmdir hófust með formlegum hætti við nýjan gervigrasvöll á félagssvæðinu - milli KA-heimilisins og Lundarskóla. Tveir KA-félagar með stórt félagshjarta, Siguróli Sigurðsson og Þormóður Einarsson, tóku fyrstu skóflustunguna að nýja grasvellinum að viðstöddu fjölmenni.

Hrefna G. Torfadóttir, formaður KA, sagði við þetta tækifæri að dagurinn væri stór í sögu félagsins og þakkaði hún Akureyrarbæ fyrir samstarfið við undirbúning að vellinum. Hrefna afhenti Eiríki Birni Björgvinssyni, bæjarstjóra, Hummel-knött, merktan KA, sem hún bað Eirík að varðveita á meðan á framkvæmdum myndi standa.

Geir Kristinn Aðalsteinsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, óskaði KA til hamingju með þennan stóra dag, sem hann sagði að myndi festa Akureyri enn frekar í sessi sem öflugan íþróttabæ. Hrósaði Geir Kristinn KA fyrir hvernig staðið hefði verið að málum við undirbúning þessarar framkvæmdar, en félagið hefði sýnt mikla þolinmæði og staðið vel að málum síðan framkvæmdum við vallarframkvæmdir á KA-svæðinu hafi verið hætt þegar fjármálahrunið varð 2008.

Strax eftir helgi verða stórvirkar vinnuvélar komnar á KA-svæðið til að grafa fyrir vellinum, en miðað er við að völlurinn sjálfur verði tilbúinn um miðjan júní.

Nýjast