Stjórnendur Fiskidagsins mikla hafa undanfarið unnið að því að skipuleggja flokkun á rusli sem fellur til á fjölskylduhátíðinni Fiskidagurinn mikli. Í ár verður skrefið tekið lengra með samvinnu fjögurra aðila, Samáls samtaka álframleiðenda, Sæplasts, Gámaþjónustu Norðurlands og Fiskidagsins mikla. Fulltrúar frá hverjum aðila fyrir sig undirrituðu samvinnusamning um flokkun á því rusli sem til fellur á Fiskideginum í Bergi, menningarhúsi í gær.
Stefnt er að því að flokka álpappír, plast og almennt sorp ásamt því að dósir og plastflöskur eru flokkaðar af Björgunarsveitinni á Dalvík og rennur ágóðinn af þeirri söfnun óskiptur til sveitarinnar. Næstu árin stefnir hugur þessara aðila til enn meiri flokkunar og að fá fleiri að borðinu.
Hafa notað 2,6 tonn af álpappír
Sæplast setur upp litakerfi og merkingar á Sæplastkör sem verða víða á hátíðarsvæðinu og standa vonir til þess að gestir kynni sér merkingar og leggi verkefninu lið. Gámaþjónusta Norðurlands sér að venju um að taka það sem flokkað er og koma á rétta staði.
Samál, sem eru nýir í hópi aðalstyrktaraðila Fiskidagsins mikla, leggja verkefninu lið en til gamans má geta að Fiskidagurinn mikli hefur notað um 2,6 tonn af álpappír í þessi 17 ár.
Allt frá upphafi hefur Fiskidagurinn mikli lagt mikla áherslu á að umgengni sé góð. Oft hefur verið rætt um að þar sem allt er frítt á Fiskideginum mikla sé aðgöngumiðinn sá að gestir gangi vel um og sýni almennt góða hegðun. Mælst er til þess að gestir leggir verkefninu lið með því að nota sömu diska og súpuglös eins mikið og hægt er.