Á síðustu vikum hef ég hitt mikið af góðu fólki í kjördæminu og það sem stendur uppúr og getur orðið nokkurskonar samnefnari að mínu mati, er ákall um úrlausnir við vanda fjölmargra heimila, atvinnumál og samgöngur.
- Skuldaklafi heimilanna
Sú staða hefur sennilega ekki komið upp á Íslandi áður að heil kynslóð á minna en ekki neitt Þetta kemur fram í samantekt Jóns Ævars Pálmarssonar verkfræðings um stöðu fólks fætt á árunum 1970-1989. Hvernig þetta gerðist er þekkt saga en hvernig við ætlum að bregðast við er óskrifað blað. Væntingar voru miklar en efndir litlar og enn blæða heimilin. Hér er komin tími til aðgerða og þær verða að fela í sér raunverulegar lausnir. Það er ekki lausn að leita í tómum vösum, það er lausn að fjölga vösum og taka minna.
- Atvinnusköpun og efnahagsmál
Ég tel mikilvægt að styðja betur við lítil og meðalstór fyrirtæki og að vöxtur atvinnulífsins sé forsenda þess að öflug uppbygging geti átt sér stað. Í einföldu reikningsdæmi, hvort er betra að taka 100kr af 10 fyrirtækjum eða 10kr af 100? Er ekki líklegra að umsvif fleiri fyrirtækja skili sér í meiri þjónustu, uppbyggingu og fjölbreytni? Mikilvægt er að leggja fram raunhæfa áætlun í efnahagsmálum sem stuðlar að skattalækkun til frambúðar, hætta verður stöðugum árásum á grunnstoðir atvinnulífsins og tryggja þarf rekstarskilyrði til framtíðar.
- Samgöngur
Til þess að hægt sé að byggja upp öfluga þjónustu og atvinnustarfsemi þurfa samgöngur að virka og vera til þess fallnar að þjóna þörfum notenda. Eitt af brýnustu málefnum Norðausturlands er að vinna að nauðsynlegum vegabótum og halda áfram að vinna að skipulagi jarðgangna. Tryggja þarf áframhaldandi staðsetningu Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri og byggja upp öfluga samgöngumiðstöð við flugstöðina.
Mörg brýn verkefni bíða okkar í þessu víðfeðma kjördæmi þar sem tækifæri til sóknar eru svo sannarlega til staðar.
Ég bið um stuðning þinn í 3.sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir