Fasteignamarkaðurinn er greinilega að taka við sér, veltan á síðasta ári vegna fasteignaviðskipta á Akureyri var samtals 10,8 milljarðar króna, en árið 2011 var veltan 8,5 milljarðar. Mismunurinn er um 2,3 milljarðar króna, eða 26 %. Alls var þinglýst 450 kaupsamningum á síðasta ári vegna fasteignaviðskipta, en árið 2011 var þinglýst 403 samningum.
Arnar Guðmundsson hjá Miðlun fasteignum á Akureyri segir að þessar tölur sýni svart á hvítu að markaðurinn sé að braggast.
Nýliðið ár var mjög gott, sérstaklega síðustu mánuðirnir. Desember var til dæmis mjög góður hjá okkur. Fasteignaverðið er greinilega á uppleið hérna á Akureyri, fasteignamatið hækkaði á síðasta ári um nærri 10 % en matið er nánast beintengt við raunverulegt verð fasteigna.
Arnar segir að ekki hafi verið mikið um bein viðskipti á fyrstu dögum þessa árs, þó séu margir greinlega að hugsa málið.
Síðan verð ég var við að fyrirtæki eru spá í spilin. Þetta eru til dæmis fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu sem eru að hugsa um að opna hérna útibú. Þetta sýnir mér að fyrirtækin hafa trú á Eyjafjarðarsvæðinu og vilja gjarnan koma hingað, eða efla þá starfsemi sem fyrir er á staðnum.
karleskil@vikudagur.is