Hann segir þungt hljóð í sínu fólki, sex starfsmenn missi vinnuna þann 15. og þá taki við biðlaunaréttur. Hann segist hafa átt von á því að hætt yrði við lokunina. Þessi eining hafi skilað hvað bestum árangri í fangakerfinu og þetta sé þjónusta sem þurfi að vera á Norðurlandi. Ákvörðunin hafi verið tekin en enn eigi hann eftir að sjá forsendur fyrir henni. Hann telji það vera mistök að loka fangelsinu.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, tilkynnti um lokunina í júlí. Með henni átti að nýta betur það fjármagn sem fer í rekstur fangelsa. Lokunin var harðlega gagnrýnd og meðal annars bent á samlegðaráhrif lögreglunnar á Norðurlandi eystra og fangelsisins.