Eldur í Glerárskóla á Akureyri

Slökkviliðið að störfum/mynd Karl Eskil
Slökkviliðið að störfum/mynd Karl Eskil

Slökkviliðið á Akureyri var kallað út um klukkan 18, vegna elds í Glerárskóla á Akureyri. Slökkviliðsmaður á staðnum sagði að eldurinn hefði komið upp í eldhúsi starfsfólks.

Töluverður reykur myndaðist og hefur slökkviliðið lokið störfum. Engan sakaði.

Ekki er vitað um skemmdir.

Nemendur Glerárskóla eru um 340.

Meðfylgjaandi mynd var tekin skömmu eftir að slökkviliðið mætti á staðinn

karleskil@vikudagur.is

Nýjast