Eitthundrað bækur sem þú verður að lesa

Hólmkell Hreinsson og Freyja Dögg Frímannsdóttir virðast alsæl með bækurnar
Hólmkell Hreinsson og Freyja Dögg Frímannsdóttir virðast alsæl með bækurnar

Starfsmenn Amtsbókasafnsins á Akureyri og Menningarhússins Hofs hafa komið fyrir um eitthundrað bókum í bókahillu á jarðhæð  Hofs. Ástæðan fyrir bókaflutningunum er samstarfsverkefni Hofs og Amtsbókasafnsins sem í vetur standa að sameiningu að dagskrá sem tengist ritlist og bókmenntum. Eitt af markmiðum verkefnisins er að stuðla að auknum sýnileika ritlista og bókmennta í samfélaginu.

Bókunum í hillunni verður skipt út mánaðarlega og í hverjum mánuði er ákveðið þema sem er ráðandi í bókavalinu. Í september er þemað „100 bækur sem þú verður að lesa“ en á bókasafnsdeginum árið 2011 tók Amtsbókasafnið saman lista yfir rúmlega hundrað bækur eftir íslenska höfunda sem starfsfólk bókasafna víðsvegar um landið telur að allir verði að lesa einhvertíman á ævinni. Á meðal viðburða sem verða á dagskrá í Hofi í vetur og tengjast ritlist og bókmenntum er Höfundaspjall, en íslenskir höfundar á vegum bókaútgáfunnar Forlagsins heimsækja Hof og lesa upp úr verkum sínum og spjalla við gesti. Málþing og spjall um leikritun verður einnig og dagskrá og Endurmenntun Háskóla Íslands stendur fyrir námskeiði um skapandi skrif.

 

Nýjast