Dagforeldri kærir ritstjóra Akureyri vikublaðs

Dagforeldri á Akureyri hefur sent siðanefnd Blaðamannafélags Íslands kæru á hendur Birni Þorlákssyni ritstjóra, vegna  frétta sem birtust á vefmiðlinum akureyrivikublad.is og á forsíðu Akureyri-vikublaðs fyrr í mánuðinum.

Í fréttinni var fjallað um dagforeldri á Akureyri sem passi 4-6 börn, þrátt fyrir að hafa farið fyrir dóm vegna gruns um kynferðisbrot gagnvart syni. Dagforeldrið, karlmaður, hafi verið sýknað af ákæru, bæði í Héraðsdómi Norðurlands eystra og Hæstarétti árið 2011.

 Í kærunni segir að fyrirsögn fréttarinnar „Sýknaður af níði passar börn“  gefi misvísandi upplýsingar og sé ærumeiðandi. Fréttin hafi valdið mikilum sársauka og vanlíðan, ekki síst hjá börnum og aðstandendum viðkomandi dagforeldris.

Einnig er tekið fram í kærunni að fréttin hafi valdið viðkomandi dagforeldri umtalsverðum fjárhagsskaða, ærumissi og atvinnumissi. Ritstjórinn hafi ekki reynt að hafa samband við dagforeldrið við vinnslu fréttarinnar.

Ritstjórinn haldi því fram að dagforeldrið gæti 4-6 barna, sannleikurinn sé að þau hafi verið þrjú, þar af séu tvö þeirra börn kæranda.

Kæran byggir á 3. og 5. grein siðareglna Blaðamanna Íslands, þar segir að blaðamaður skuli forðast allt sem valdið geti saklausu fólki óþarfa sársauka eða vanvirðu og að í frásögnum af dóms og refsimálum skuli blaðamenn virða þá meginreglu laga að hver maður sé talinn saklaus þar til sekt hans hefur verið sönnuð.

karleskil@vikudagur.is

 

Nýjast