Fræðslu- og lýðheilsuráð áréttar í bókun „að þegar gervigrasmottan og undirlagið í Boganum verður endurnýjað að þá er horft til þess að vera ekki með bílasýningar og þung tæki á nýju gervigrasi og nýju undirlagi.“
Bílaklúbbur Akureyrar óskaði á dögunum eftir afnotum af Boganum fyrir árlega bílasýningu félagsins 17. júní næstkomandi. Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkti erindið og heimilaði notkun á Boganum undir bílasýningu Bílaklúbbs Akureyrar 2026.