Baldvin Ari knapi ársins 2012

Baldvin og Öngull frá Efri Rauðalæk
Baldvin og Öngull frá Efri Rauðalæk

Knapi ársins hjá hestamannafélaginu Létti á Akureyri árið 2012, er Baldvin Ari Guðlaugsson.
Baldvin er öllum hestamönnum kunnur og er búinn að vera í fremstu röð knapa í áraraðir.
Baldvin hefur verið valinn knapi ársins hjá Létti undanfarin ár enda ötull og árangursríkur keppnismaður.
Árið 2012 keppti Baldvin á flestum mótum Léttis með mjög góðum árangri.
Meðal annars sigraði Baldvin stigakeppnina í KEA mótaröðinni og bar sigur úr bítum í tölti og fjórgangi
og var í öðru sæti í fimmgangi á vormóti Léttis. Baldvin er fjölhæfur knapi og frábær keppnismaður.

Nýjast