Bágt ástand malarvega

Ástand malarvega í Þingeyjarsýslum er hálfgert eilífðarmál     Mynd  thingeyjarsveit.is
Ástand malarvega í Þingeyjarsýslum er hálfgert eilífðarmál Mynd thingeyjarsveit.is

Alvarlegt ástand malarvega í Þingeyjarsveit var til umræðu á fundi sveitarstjórnar á dögunum, en á þessu kjörtímabili hefur sveitarstjórn bókað þrisvar sinnum um bágt ástand þeirra.

Sveitarstjórn leggur áherslu á að ástand malarvega í sveitarfélaginu þarf að bæta og hefla þarf malarvegi fyrir haustið svo ástand veganna sé bærilegt fram eftir hausti og framkvæmdum verði lokið fyrir frost og vetur.

Vert er að minna á að vegi með bundnu slitlagi þarf ekki að hefla segir í bókun.

Nýjast