Fyrst og fremst finnst mér þetta óþægilegt fyrir bæinn, hann er að gera sig hálf leiðinlegan fyrir lítið, segir Jóhannes Sigvaldason formaður Félags eldri borgara á Akureyri en um áramót var sú breyting gerð á gjaldskrá sundstaða að íbúar eldri en 67 ára greiða aðgangseyri að sundlaugum. Ókeypis var áður fyrir þennan aldurshóp. Aldraðir greiða nú sama gjald í sundlaugar og börn.
Jóhannes kveðst ekki vita til þess að aldraðir hafi hætt sundiðkun þó þeim sé gert að greiða fyrir sundferðir sínar og segir þá flesta kaupa árskort. Þau kosta 5000 krónur.
Við bentum á að í heildarsamhenginu skipti þetta bæinn eflaust ekki svo miklu máli, tekjurnar sem hann hefur af öldruðum nema um hálfri milljón króna gæti ég trúað, segir Jóhannes og bendir á að Akureyrarbær bjóði íbúum ókeypis í strætó og bílastæði í miðbæ séu gjaldfrjáls. Sú hálfa milljón á ári sem bærinn hefði í auknar tekjur með því að rukka aldraða fyrir aðgang að sundlaugum gæti þannig varla skipt sköpum hvað rekstur bæjarins varðar.
Jóhannes segir að félagið hafi hvatt eldri borgara til að hreyfa sig og m.a. bent á kosti þess að synda. Akureyrarbær hafi á liðnu vori tekið þátt í átaki með félaginu og þess vegna finnst félagsmönnum þetta svolítið einkennilegt, en svona er nú bara lífið.