Gagnavers- og ofurtölvufyrirtækið atNorth hefur ráðið Bjarka Björnsson sem forstöðumann fjármögnunar og fjárstýringar og Axel Valdemar Gunnlaugson í starf forstöðumanns upplýsingatækni.
Báðir búa að áratugareynslu á sínu sviði. Bjarki kemur til með að bera ábyrgð á fjölda verkefna, þar á meðal sjálfbærri fjármögnun á vexti fyrirtækisins. Meðal verkefna Axels verður svo að leiða stefnumótun og samþættingu kerfa og ferla hjá atNorth.
Ráðning Bjarka og Axels til atNorth er til komin af auknum umsvifum fyrirtækisins, en yfirstandandi er stækkun gagnavera atNorth á Akureyri og í Reykjanesbæ.
Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth:
„Við bjóðum Bjarka og Axel hjartanlega velkomna og hlökkum til samstarfsins. Starfsfólkið er hjarta starfseminnar og drifkrafturinn að baki áframhaldandi vexti atNorth. Við fögnum liðsaukanum og höldum áfram að einbeita okkur að því verkefni að mæta þörfum fyrirtækja fyrir stafræna innviði á umhverfisvænan hátt.“
Bjarki Björnsson, forstöðumaður fjármögnunar og fjárstýringar atNorth:
„Starfsemi gagnavera og þróun gervigreindar er það svið upplýsingatækninnar sem er hvað mest spennandi í heiminum í dag og tilhlökkunarefni að vinna að undirstöðum örs og áframhaldandi vaxtar atNorth.“
Axel Valdemar Gunnlaugsson, forstöðumaður upplýsingatækni hjá atNorth:
„Ég hlakka til að taka til hendinni upplýsingatæknirekstri atNorth og tryggja áframhaldandi þjónustu í hæsta gæðaflokki sem styður við vöxt fyrirtækisins.“
Bjarki Björnsson kemur til atNorth frá Marel þar sem hann hafði starfað frá 2011, fyrst sem sérfræðingur í fjárstýringu, en svo sem yfirmaður fjárstýringar og fjármögnunar. Áður starfaði Bjarki hjá SP-Fjármögnun í fjárstýringu frá árinu 2004.
Bjarki lauk B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík 2005 og meistaragráðu í fjárfestingastjórnun frá sama skóla 2009.
Axel hefur sérhæft sig í þróun hugbúnaðar og högun tæknilegs umhverfis fyrirtækja jafnt heima og erlendis, en áður en hann kom til atNorth var hann tæknistjóri Icelandia (Kynnisferða) frá 2021. Hann er að auki stofnandi og stjórnarmaður í upplýsingatæknifyrirtækinu Codilac.
Axel lauk námi í tölvu- og upplýsingafræði við University of Oregon í Bandaríkjunum 1984.
Frá þessu segir í tilkynnngi frá atNorth