Amtsbókasafnið á Akureyri hefur hlotið 400 þúsund króna styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála fyrir verkefnið Mánuður móðurmáls.
Alþjóðlegur dagur móðurmáls er haldinn 21. febrúar ár hvert. Amtsbókasafnið hefur fagnað deginum með ýmsum hætti um árabil. Með verkefninu Mánuður móðurmáls verður dagskráin útvíkkuð og haldin allan febrúarmánuð. Á dagskrá verða fjölbreyttir viðburðir fyrir börn og fullorðna.
Á meðal viðburða verða sýningar, bókaskiptimarkaður, sögustundir á erlendum tungumálum og móðurmálshátíð með tónlist og ljóðalestri. Markmiðið er að fagna fjölbreytileika samfélagsins, efla samskipti fólks af ólíkum uppruna og undirstrika mikilvægi móðurmála og menningar.