Alhvítt alla daga á Akureyri í nóvember

Meðalhitinn á Akureyri var -1 stig í nóvember
Meðalhitinn á Akureyri var -1 stig í nóvember

 Hitinn í mánuðinum var nærri meðallagi á landinu öllu, aðeins ofan við það á Suður- og Austurlandi en lítillega undir um landið norðvestan- og norðanvert. Þetta kemur fram í yfirliti Veðurstofu Íslands. Meðalhitinn í Reykjavík var 1,5 stig er það 0,3 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990. Á Akureyri var meðalhitinn -1,0 stig og er það um 0,7 stigum undir meðallagi.

 Úrkoma

Mjög úrkomusamt var um landið norðan- og austanvert, en tiltölulega þurrt víðast hvar á Suðurlandi, þó ekki í Reykjavík því þar mældist úrkoma 85,6 mm og er það 18 prósent umfram meðallag. Á Akureyri mældist úrkoman 127,3 mm og er það meira en tvöföld meðalúrkoma í nóvember. Jafnmikil úrkoma hefur ekki mælst á Akureyri í nóvember síðan 1991 – en þá var hún heldur meiri en nú.

Sólskinsstundir

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 33 og er það um 5 stundum færri en í meðalári. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 8 og er það 6 stundum minna en í meðalári.

Snjólag

Óvenju snjóþungt var um landið norðanvert. Á Akureyri var alhvítt alla daga mánaðarins og hefur það ekki gerst þar í nóvember síðan 1969. Alhvítt var 29 daga í nóvember 2010. Í Reykjavík voru fjórir  alhvítir dagar en þrjá þeirra var aðeins grátt í rót

Nýjast