"Algjört klúður og ekkert hægt að gera"

Davíð Björnsson
Davíð Björnsson

„Fyrirgefðu vinur, okkur þykir þetta leiðinlegt. Þetta eru svörin sem ég fæ,“ segir Davíð Björnsson sem rekur pípulagningafyrirtækið Loka á Akureyri.

Misskilningur, eða klúður eins og hann kallar það varð til þess að fyrirtækinu bárust ekki útboðsgögn þegar Akureyrarbær bauð út verkefni skömmu fyrir áramót, svonefnt ófyrirséð viðhald.

Loki hefur um tveggja ára bil sinnt einum þætti þessa ófyrirséða viðhalds.

Davíð segir að fyrir um einu og hálfu ári hafi fyrirtækið skipt um netfang í kjölfar þess að það hóf viðskipti við annað símafyrirtæki. Starfsmenn bæjarins hafi sent fyrirtækinu verkbeiðnir síðastliðin tæpu tvö ár í nýtt netfang og haft samskipti við sig, stundum oft í viku.

 „Þetta gekk snurðulaust fyrir sig,“ segir hann. Um síðustu áramót var komið að því að óska tilboða í ófyrirséða viðhaldið á nýjan leik, en gildistími þeirra er tvö ár í senn.

 Davíð segir að sér hafi ekki borist útboðsgöngn og hélt að á því væri eðlileg skýring, dráttur hefði orðið á að verkin væru boðin út eða eitthvað þess háttar. Þegar svo félagar Davíðs í greininni fóru að spyrja hverju það sætti að hann hefði ekki sent inn tilboð runnu á hann tvær grímur.

 „Þá kom þetta allt saman í ljós, netfangaskiptin höfðu ekki verið uppfærð hjá þeim aðilum sem sendu út útboðsgögnin, pósturinn lenti í því gamla sem ég hélt satt best að segja að væri búið að loka fyrir löngu. Þetta er bara algjört klúður og ekkert hægt að gera,“ segir Davíð sem bæði hefur rætt málið við embættis- og stjórnmálamenn innan bæjarkerfisins.

 „Þeir geta ekkert gert nema beðist afsökunar á þessum mistökum. Mér er bent á að það eina sem ég geti gert til sækja minn rétt sér að ráða lögfræðing og það hef ég gert.“

Nýjast